94.700.000 kr. - 140,4 ferm. - 5 herbergi Raðhús - 109 Reykjavík


















































Endaraðhús á 2 hæðum í grónu hverfi við Tindasel 1H, 109 Reykjavík. Húsið er á 2 hæðum með góðum sérafnotareit í 3 áttir. Húsið er skráð 140,4 fm og að auki er óskráður kaldur geymsluskúr. Tindasel 1H er vel staðsett með tilliti til skóla og leikskóla. Stutt í stofnbrautir.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR
Lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með fataskáp og flísum. Gestasalerni er innaf forstofu með flísum á gólfi og panelklæddum veggjum og einnig er geymsla við hlið salernis. Eldhús, borðstofa og stofa er opið rými. Eldhúsinnrétting er með U-laga innréttingu, efri og neðri skápar, flísar á milli skápa sem og á gólfi. Stofan er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á norðaustur pall og þaðan á gras. Einnig er garður meðfram húsinu og fyrir framan húsið.
Gengið upp tréstiga á efri hæð, stórir gluggar við stigann sem gefa góða birtu í rýmið. Komið inn í hol með parketi á gólfi. 4 svefnherbergi (eitt var stúkað af úr holinu), öll með parketi á gólfi. Hjónaherbergi er með fataskáp og útgengt á svalir sem snúa yfir garðinn. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, bæði baðkar og sturta, innrétting og gluggi. Þvottahús er með flísum á gólfi, vaski, snúrum og hillum.
Tindasel 1H er virkilega vel staðsett hús innst í botnlanga með skjólgóðum garði og notalegum palli. Á haustin er svo hægt að sulta úr uppskerunni þar sem það má finna rifsber, sólber, hindber og rabbabara. 2 leikskólar og annar við hliðina. Ölduselsskóli er í 2ja mínútna fjarlægð þannig að það þarf ekkert skutl hérna. Gríðarleg flott útivistar- og göngusvæði allt í kring og stutt í búðir. ÍR íþróttasvæðið er í göngufæri og 10 mínútur í Gerplu og Salalaug í Kópavogi.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Raðhús |
| Verð | 94.700.000 kr. |
| Fasteignamat | 106.200.000 kr. |
| Brunabótamat | 76.200.000 kr. |
| Stærð | 140,4 fermetrar |
| Herbergi | 5 |
| Svefnherbergi | 4 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1994 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | já |
| Skráð | 04.09.2026 |