Steinhella 14

23.700.000 kr. - 48,1 ferm. Atvinnuhúsnæði - 221 Hafnarfjörður

Lýsing eignar

Rúmgott iðnaðarbil við Steinhellu 14, 221 Hafnarfjörður. Bilið skráð 48.1 fm og er með um 3,9 m lofthæð, innkeyrsluhurð og snyrtingu. Einnig er flóttaleið á sameiginlegan gang. Hentar vel fyrir lager, verkstæði eða létta iðnaðarstarfsemi.

Lýsing og skipulag eignar:
Lofthæð í húsnæðinu er um 3,9 m og innkeyrsluhurð um 3,5 m á hæð og 3,4 m á breidd. Gönguhurð er til hliðar við innkeyrsluhurð. Innanmál bilsins eru um 4,82 m á breidd og 9,30 m á dýpt. Innst í bilinu er afstúkuð snyrting með salerni og vaski og flóttaleið út á sameiginlegan gang. Húsnæðið er rúmgóður salur með góðri lofthæð og millilofti. Ekki virðisaukaskattskvöð á iðnaðarbilinu. Húsfélag er virkt og gilda skýrar reglur um umgengni á sameiginlegri lóð. Hillusamstæða fylgir.

Byggingarlýsing:
Húsið er timburgrindarhús á steyptum undirstöðum, byggt árið 2013. Útveggir eru úr timbri með báruklæðningu að utan. Þak er tvíhalla og klætt með þakdúk.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

48,1 m2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Atvinnuhúsnæði
Verð 23.700.000 kr.
Fasteignamat 20.050.000 kr.
Brunabótamat 19.600.000 kr.
Stærð 48,1 fermetrar
Herbergi Ekki skráð
Svefnherbergi Ekki skráð
Baðherbergi 1
Byggingarár 2013
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður nei
Skráð 04.09.2026

Deila eign



Pin it